Í þessari meðferð eru náttúrulegu neglurnar lengdar með toppum eða formum í þá lengd og lögun sem hver og ein kýs, svo er nöglin byggð upp með geli.
Þegar french manicure er gert þá er sett hvít gellína fremst á neglurnar en einnig er hægt að fá þessa línu í fleiri fallegum litum.
Þessi meðferð hentar þeim konum sem vilja láta lengja og styrkja sínar neglur og vera með snyrtilega french manicure lökkun fremst á nöglunum. Gelið ver neglurnar fyrir utanaðkomandi áreiti og varnar því að náttúrulegu neglurnar klofni, brotni eða rifni og leyfir þeim að vaxa óáreittum undir gelinu. Hver og ein ræður lengd og lögun naglanna.